Einingar: 3
Hæfniþrep: 2
Viðfangsefni: Tónbil, moll/dúrtónstigar, taktsláttur, einfaldar laglínur í moll og dúr, einfaldur hrynur, nótnalestur, nótnaritun.
Lýsing:
Nemendur syngja lög og tónbilaæfingar, fara með hryn og æfa lestur í g- og f-lykli. Þá rita þeir niður eftir eyra einfaldar laglínur og einföld hryndæmi af svipuðum toga og lært efni. Allt efni er kynnt og undirbúið í kennslutímum en nemendur þurfa að æfa sig reglulega heima og gildir það um allt námsefnið. Kennslubækur eru: Folk Song Sight Singing Series, hefti 3-4; P. Hindemith: Elementary Training; G. Dandelot: Manuel Pratique og R. Starer: Rhythmic Training.
Forkröfur:
Tónheyrn 1.1.
Þekkingarviðmið:
-
Syngja 5undir, 6undir og 7undir upp og niður frá gefnum tóni og geta greint sömu tónbil þegar þau eru slegin á píanó.
-
Stjórna fimm- og sexskiptum takti samtímis því að syngja lög eða fara með hryn.
-
Syngja alla molltónstigana upp og niður frá gefnum tóni á nótnaheitum, frumhljómur gefinn.
-
Stökkva raddlega viðstöðulaust á milli allra tóna í molltónstiganum, frumhljómur gefinn.
-
Syngja einföld lög í moll og dúr á nótnaheitum sbr. hefti 3 og 4 í Sight Singing Series.
-
Fara með ein- og tvíradda hrynæfingar sbr. kafla IV í Elementary Training og æfingar 27–36 í Rhythmic Training.
-
Skrifa niður eftir heyrn einföld lög annars vegar og hins vegar einfaldan hryn.
Leikniviðmið:
-
Hafa ofantalin þekkingaratriði þrautalaust á valdi sínu í músíkölsku samhengi.
-
Geta farið hnökralítið með þær æfingar sem settar eru fyrir.
-
Geta skráð vandkvæðalítið eftir heyrn þau dæmi sem leikin eru.
Hæfniviðmið:
-
Hafa lesfærni á ritaða tónlist.
-
Geta yfirfært hryn og tóna yfir á rittákn.
-
Geta heyrt ritaða tónlist og ritað heyrða.
Námsmat: Símat, munnleg og skrifleg próf í kennslustundum alla önnina og/eða próf í lok annar.
- Kennari: Þórður Magnússon