Einingar: 3
Hæfniþrep: 1
Viðfangsefni: Saga jazztónlistar frá 1945 til nútímans.
Lýsing: Farið er í gegnum jazzsöguna frá upphafi bebop stílsins til nútímans. Rætt um þróun tónlistarinnar, tengsl við aðrar tónlistarstefnur og þóðfélagsatburði.
Forkröfur: Jazzsaga 1.1
Þekkingarviðmið: Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Helstu stílum jazztónlisar á tímabilinu og einkennum þeirra.
Mikilvægustu einstaklinga og þeirra helstu verkum.
Hvernig mikilvægir atburðir í mannkynssögunni hafa áhrif á þróun jazztónlistar.
Gagnkvæmum áhrifum á milli mismunandi tónlistartegunda.
Leikniviðmið: Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Fjalla um afmörkuð viðfangsefni er tengjast jazzsögu frá 1945 til nútímans.
Svara munnlega og skriflega spurningum um jazzsöguleg málefni s.s. samhengi, orsakir, afleiðingar, stíl og þróun.
Þekkja eftir heyrn ólíka stíla.
Þekkja eftir heyrn stíl mikilvægustu listamanna tímabilsins.
Geta greint söguleg einkenni í samræmi við þróun stíls á tímabilinu.
Fjalla um jazzsöguleg málefni í heimildaritgerð.
Hæfniviðmið: Í lok námskeið á nemandi að:
Þekkja helstu listamennn sem móta tímabilið og áhrifamestu verk þeirra.
Þekkja og skilja helstu stíla jazztónlistar á tímabilsinu.
Geta fjallað um og útskýrt stílræn einkenni í jazztónlist tímabilsins.
Hafa grunngetu til að fjalla um sögulegt samhengi jazztónlistar á mismunandi skeiðum.
Hafa yfirsýn og getu til að fjalla um þróun stíleinkenna á tímabilinu.
Námsmat: Próf úr efni í annarlok, hlustunarpróf og ritgerð.
- Kennari: MIT Administrator