Jazzsaga 1.1
Einingar: 3
Hæfniþrep: 1
Viðfangsefni: Saga jazztónlistar frá upphafi til 1950, hlustun og greining.
Lýsing: Farið er í gegnum jazzsöguna frá upphafi til loka swingtímabilsins um 1950. Rætt um þróun tónlistarinnar, tengsl við aðrar tónlistarstefnur og þóðfélagsatburði.
Forkröfur: Engar
Þekkingarviðmið: Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
-
Helstu stílum jazztónlistar á tímabilinu og einkennum þeirra.
-
Mikilvægustu einstaklinga og þeirra helstu verkum.
-
Hvernig mikilvægir atburðir í mannkynssögunni hafa áhrif á þróun jazztónlisltar.
-
Gagnkvæmum áhrifum á milli mismunandi tónlistartegunda.
Leikniviðmið: Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
-
Fjalla um afmörkuð viðfangsefni er tengjast jazzsögu frá byrjun 20. aldar fram undir 1950.
-
Svara munnlega og skriflega spurningum um jazzsöguleg málefni s.s. samhengi, orsakir, afleiðingar, stíl og þróun.
-
Þekkja eftir heyrn ólíka stíla.
-
Þekkja eftir heyrn stíl mikilvægustu listamanna.
-
Geta greint söguleg einkenni í samræmi við þróun stíls á tímabilinu.
-
Fjalla um jazzsöguleg málefni í heimildaritgerð.
Hæfniviðmið: Í lok námskeið á nemandi að:
-
Þekkja helstu listamennn sem móta tímabilið og áhrifamestu verk þeirra.
-
Þekkja og skilja helstu stíla jazztónlistar á tímabilinu.
-
Geta fjallað um og útskýrt stílræn einkenni í jazztónlist tímabilsins.
-
Hafa grunngetu til að fjalla um sögulegt samhengi jazztónlistar á mismunandi skeiðum.
-
Hafa yfirsýn og getu til að fjalla um þróun stíleinkenna á tímabilinu.
Námsmat: Próf úr efni í annarlok, hlustunarpróf og ritgerð.
- Kennari: MIT Administrator