Einingar: 3
Hæfniþrep: 2
Viðfangsefni:
Áhersla er lögð á að efla tónheyrn og færni í að greina hvernig tónbil, laglínur, hljómar og hljómasambönd eru uppbyggð. Námið miðar að því að nemendur hafi vald á að syngja, greina og skrifa niður algeng díatónísk takt-, laglínu- og hljómferli. Tónbil eru innan áttundar, laglínu- og hljómadæmi eru oftast styttri en 4 taktar. Hrynviðfangsefni byggja á tiltölulega algengum áttundapartaferlum
Lýsing:
Tónlestur, tónbil og ritun hljóma, laglínu- og hrynferla. Í tónheyrninni er notast við Solfa kerfið.
Forkröfur:
Miðnámspróf í tónfræði eða stöðupróf við skólann
Þekkingarviðmið: Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
-
Laglínusöng með Solfa aðferð og uppbyggingu hljóma.
-
Hvernig algengar rytmískar hrynhendingar, byggðar að mestu á áttundapartsnótum, eru útfærðar í nótnaskrift.
Hæfniviðmið: Nemandi skal hafa tileinkað sér færni í að:
-
Heyra, syngja og rita niður einfaldar díatónískar laglínuhendingar í dúr- og blústónstiga, sem byggðar eru á algengum rytmískum hrynmynstrum.
-
Greina einföld hljómferli innan tóntegundar.
-
Hagnýta sér þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur öðlast til að efla samleik og spuna.
Námsmat:
Próf í lok áfanga: skriflegt og munnlegt og gildir hvor þáttur 50%.
- Kennari: Gunnar Hrafnsson
- Kennari: Ólafur Jónsson