Einingar: 3
Hæfniþrep: 1
Viðfangsefni: Tónlistarsaga, hlustun, formfræði
Lýsing:
Á námskeiðinu er farið yfir tónlistarsögu 19. aldar, rómantíska skeiðið (ca. 1815- 1900), þar sem fjallað er um helstu höfunda og verk sem móta tímabilið. Sagan er skoðuð í samhengi við almenna sögu 19. aldar í gegnum orsakir og afleiðingar. Leitast er við að tengja og skilja stöðu, þróun og framvindu tónlistarinnar í ljósi ýmiskonar þjóðfélagslegra umbrota sem fylgdu tímaskeiðinu.
Forkröfur: Engar
Þekkingarviðmið: Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
-
Mikilvægi tónlistarsögu fyrir heildrænan þroska í tónlist.
-
Fagurfræðilegum og hugmyndafræðilegum forsendum er liggja til grundvallar mismunandi stílum og einkennum tónverka.
-
Hvernig mikilvægir atburðir í mannkynssögunni hafa áhrif á þróun tónsköpunar.
-
Þróun stíls og einkenna á mismunandi tímabilum.
-
Gagnkvæmum áhrifum á milli mismunandi listgreina.
Leikniviðmið: Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
-
Fjalla um afmörkuð viðfangsefni er tengjast tónlistarsögu á 19. öld.
-
Svara munnlega og skriflega spurningum um tónlistarsöguleg málefni s.s. samhengi, orsakir, afleiðingar, stíl og áferð.
-
Þekkja mismunandi tónverk með tilliti til höfundareinkenna, stíls og áferðar.
-
Geta greint söguleg einkenni í samræmi við þróun stíls á tímabilinu.
-
Fjalla um tónlistarsöguleg málefni í heimildaritgerð.
Hæfniviðmið: Í lok námskeið á nemandi að:
-
Þekkja helstu höfunda og verk sem móta tímabilið.
-
Þekkja og skilja helstu einkenni sem fylgja rómantískri tónlist 19. aldar.
-
Geta fjallað um og útskýrt áberandi rómantísk einkenni í tónlist.
-
Hafa grunngetu til að fjalla um sögulegt samhengi 19. aldar tónlistar.
-
Hafa yfirsýn og getu til að útskýra helstu form og gerðir verka á rómantíska skeiðinu.
-
Hafa yfirsýn og getu til að fjalla um þróun rómantíska stílsins á tímabilinu.
Námsmat: Stutt hlustunarpróf í kennslustundum, ritgerðarverkefni, próf úr efni í annarlok.
- Kennari: Úlfar Haraldsson