Valkostir við innritun

Einingar: 3

Hæfniþrep: 3

 

Viðfangsefni:

Áhersla er lögð á að efla færni nemanda í beitingu rytmískrar hljómfræði og hagnýtri notkun hennar í spuna og tónsmíðum ásamt kynningu á hljómrænu tungumáli jazztónlistar. Nemendur fái haldgóða tilfinningu fyrir tengslum hljóma og tónstiga á hljóðfæri sín.



Lýsing:

Upprifjun á fyrra námsefni. Smástígir forhljómar verða kenndir ásamt #IV-7(b5) hljóminum, tóntegundaskiptum, notkun minnkaðra sjöundarhljóma í endurhljómsetningum og hlustun.



Forkröfur:

Rytmísk hljómfræði 1.2.



Þekkingarviðmið: Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:

  • Helstu hljómgreiningaraðferðum og greiningu tónstiga ásamt tengslum hljómfræðinnar við hljóðfæraleik og tónsmíðar.



Hæfniviðmið: Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:

  • Hljómgreina algeng lög og verkefni.

  • Greina samhengi tónstiga við hljóma og um leið nýta sér þá þekkingu og útfæra með spuna á hljóðfæri sitt.

  • Semja eigin tónsmíðar.

  • Efla samleik og spuna.  



Námsmat:  

Tvö próf: Próf í lok áfanga, skriflegt og verklegt. Skriflegi þátturinn gildir 80% og verklegi þátturinn gildir 20%.



Sjálfinnritun (Nemandi)
Sjálfinnritun (Nemandi)