Einingar: 3
Hæfniþrep: 3
Viðfangsefni:
Áhersla er lögð á að efla enn færni nemanda í beitingu rytmískrar hljómfræði og hagnýtri notkun hennar í spuna og tónsmíðum ásamt kynningu á hljómrænu tungumáli jazztónlistar. Nemendur fái haldgóða tilfinningu fyrir tengslum hljóma og tónstiga á hljóðfæri sín.
Lýsing:
Áframhald á námsefni fyrri áfanga. Laustengd II V sambönd verða kennd ásamt forhljómum með sérhlutverk, pedall og ostinato, samsett hljómtákn og endurhljómsetningar, samsíða hljómar af sömu gerð og „modal“ hljómfræði. Ýtarlegri umfjöllun um tengsl hljóma og tónstiga, kynning á „modal“ tónsmíðum og hlustun.
Forkröfur:
Rymtísk hljómfræði 2.1.
Þekkingarviðmið: Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
-
Hljómgreiningaraðferðum og greiningu tónstiga ásamt tengslum hljómfræðinnar við hljóðfæraleik og tónsmíðar ásamt ýmsum endurhljómsetningaraðferðum.
Hæfniviðmið: Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
-
Hljómgreina algeng lög og verkefni.
-
Greina samhengi tónstiga við hljóma og um leið geta nýtt sér þá þekkingu og útfært með spuna á hljóðfæri sitt.
-
Semja eigin tónsmíðar og sóló.
-
Efla samleik og spuna.
Námsmat:
Tvö próf: Próf í lok áfanga, skriflegt og verklegt. Skriflegi þátturinn gildir 80% og verklegi þátturinn gildir 20%.
- Kennari: Ólafur Jónsson