Einingar: 3
Hæfniþrep: 2
Viðfangsefni:
Áhersla er lögð á að efla færni nemanda í beitingu rytmískrar hljómfræði ásamt hagnýtri notkun hennar í spuna og þeim almennu tónfræðiatriðum sem ekki var lokið með grunnnámi. Námið miðar við að nemendur hafi vald á að hljómgreina einföld lög með tilliti til spuna ásamt því að fá góða tilfinningu fyrir tengslum hljóma og tónstiga á hljóðfæri sín.
Lýsing:
Kynning á algengustu hugtökum jazzhljómfræðinnar. Kennd eru bókstafshljómatákn, heimahljómar í dúr, aukaforhljómar, framlengdir forhljómar, II-V sambönd, hljómgreining og hlustun.
Forkröfur:
Miðnámspróf í tónfræði eða stöðupróf við skólann.
Þekkingarviðmið: Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
-
Uppbyggingu hljóma og hljómgreiningaraðferðum ásamt tengslum hljómfræðinnar við hljóðfæraleik.
Hæfniviðmið: Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
-
Hljómgreina einföld lög og hljómgreiningarverkefni.
-
Rita hljóma ásamt því að leika einföld lög með tilliti til spuna.
-
Efla samleik og spuna.
Námsmat:
Tvö próf:
Próf í lok áfanga, skriflegt og verklegt. Skriflegi þátturinn gildir 80% og verklegi þátturinn 20%.
- Kennari: Gunnar Hrafnsson